21.12.2010 20:23:24 / Emil Páll

Er að hætta

3328. Eins og sést á færslum mínum undanfarna mánuði, hef ég dregið mjög úr þeim hér á blogcentral, en aukið þær að sama skapi á 123.is þar sem þær skipta 5-600 á hverjum mánuði. Stafar þetta af því að mér líkar ekki þróunin sem er orðin hér hvað kerfið varðar og eins gestina. Þar er ég ekki einn um, því nú fyrir skemmstu hætti einn af þeim duglegustu á blogginu, en við tveir voru meðal þeirra lang elstu. Virðist því fátt koma í veg fyrir það að ég hætti alveg að koma hér með færslu, sem dæmi þá er þetta 1. færslan í þessum mánuði og því ekki af háum stalli að falla.

» 14 hafa sagt sína skoðun

28.11.2010 17:42:49 / Emil Páll

Kl. 3 að nóttu

3327. Síminn hringdi hjá Jónasi klukkan þrjú um nótt, og vakti hann af værum svefni.Þetta er nágranni þinn hér. Hundurinn þinn geltir svo hátt, að ég get ekki sofið. Áður en Jónas gæti svarað nokkru skellti nágranninn á.Næstu nótt klukkan þrjú hringdi Jónas í nágrannann:- Ég á engan hund, sagði hann.

» 12 hafa sagt sína skoðun

28.11.2010 17:40:36 / Emil Páll

Jói litli....

3326. Jói litli skrifaði jólasveininum: "Kæri jólasveinn, viltu senda mér lítinn bróður eða litla systur?" Bréfið setti hann í skóinn. Þegar hann vaknaði var bréf frá jólasveininum í skónum. Í því stóð: "Sæll Jói minn, það er ekkert mál, sendu mér bara mömmu þína

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.11.2010 23:42:47 / Emil Páll

hehehehhe

3325. Gyðingur,Kaþólikki og Mormóni voru að fá sér í glas á bar og fóru að metast. Gyðingurinn byrjaði að monta sig og sagði: "Ég á fjóra syni, einn í viðbót og ég er kominn með körfuboltalið." Kaþólikkinn púaði nú á þetta og sagði: "Það er ekkert, ég á tíu syni, einn enn og ég kominn með fótboltalið." Þá segir mormóninn: "Mikið eruð þið nú vitlausir! Ég á sautján konur, ein í viðbót, og ég er kominn með golfvöll."

» 15 hafa sagt sína skoðun

23.11.2010 18:02:42 / Emil Páll

HS orka í Svartsengi

3324. Í sólinni í morgun smellti ég af þessum myndum frá orkuveri HS orku í Svartsengi






   Orkuver HS orku og næsta umhverfi í Svartsengi í morgun © myndir Emil Páll, 23. nóv. 2010

» 15 hafa sagt sína skoðun

16.11.2010 22:58:45 / Emil Páll

Landeyjarhöfn bjargað

3323.  Frá Baggalúti
Bifreið Siglingastofnunar er notuð við að flytja Mýrdalsjökul og Eyjafjallajökul á Reykjanes.

Ákveðið hefur verið að flytja Mýrdalsjökul og Eyjafjallajökul á Reykjanes til að minnka sandburð í Landeyjahöfn. Flutningurinn er hafinn og er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið fyrir áramót.


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.11.2010 07:36:59 / Emil Páll

Tveir gamlir

3322.  Tveirgamlir kallar sitja á bekk í Kringlunni þegar annar segir: "Veistu, éger 73 ára og mig verkjar í allan líkamann. Þú ert á svipuðum aldri,hvernig hefur þú það?" "Mér líður bara eins og ungabarni," segirhinn. "Humm," segir sá fyrri og er frekar efins, "í alvöru? Eins ogungabarni?" "Ójá, engar tennur, ekkert hár og é......g var að pissa á mig.

» 15 hafa sagt sína skoðun

16.11.2010 07:29:55 / Emil Páll

Einn góður....

3321. Jón lenti í hræðilegu slysi og missti getnaðarliminn. Læknirinn hansfullvissaði hann um að nútímalæknavísindi væru svo fullkomin að hanngæti fengið félagann aftur.Það kallaði hinsvegar á lýtaaðgerð þannig aðhann þyrfti að borga fyrir hana............. Lítill kostar 380 þúsund, miðlungs...650 þúsund og stór eina og hálfa milljón. Jón var handviss um að hannlangaði í stóran en læknirinn hvatti hann til að tala um það við konuna sína áður en hann tæki ákvörðun. Jón hringdi í konuna sína og sagði henni frá valkostunum. Á meðan yfirgaf læknirinn stofuna, þegar hann kom tilbaka sá hann að Jón var þungt hugsi. Hvað sagði konan? spurði læknirinn. Jón svaraði: Hún vill frekar taka eldhúsið í gegn!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.10.2010 23:59:49 / Emil Páll

...hefur aðeins eina ósk...

3320. Hver manneskja hefur 1000 óskir. Krabbameinssjúklingur hefur aðeins eina ósk: að verða betri. Ég veit að 97% eiga ekki eftir setja þetta á statusinn sinn en ég veit að vinir mínir verða hluti af þeim 3% sem setja þetta sem status, amk í klukkutíma, til að heiðra þá sem berjast við krabbamein, hafa barist og sigrað eða jafnvel tapað baráttunni! ♥

» 14 hafa sagt sína skoðun

26.10.2010 23:55:49 / Emil Páll

...of gróft...

3319. Sky sjónvarpsstöðin hefur ákveðið að flytja beinar útsendingar Liverpool liðsins yfir á klámstöðina.Þeim finnst of gróft að sýna ellefu menn tekna í rassgatið hvað eftir annað í beinni!!!!!! :)

» 13 hafa sagt sína skoðun

26.10.2010 23:52:41 / Emil Páll

þar sem þessi tegund....

3318. Sky sjónvarpsstöðin hefur nú ákveðið að sýna alla leiki Manutd. á Animal-planet þar sem þessi tegund af öpum er komin í útrýmingarhættu!!!...

» 13 hafa sagt sína skoðun

26.10.2010 20:19:06 / Emil Páll

Gefum konum frí alla daga....

3317. Sá þetta hjá einum fésvini mínum: Áhugaverð tölfræði úr
íslensku mannlífi í gær. Eftir kl 14.25 í gær minnkaði álag á
facebook á Íslandi um 80%. Hagnaður atvinnulífsins jókst um tæp 23% á
sama tíma miðað við aðra daga. Enginn umferðaróhöpp urðu á þessum
tíma dagsins. Heimilisofbeldi var í sögulegu lágmarki. I wonder
......why?? Niðurstaða = gefum konum frí alla daga...

» 14 hafa sagt sína skoðun

24.10.2010 21:25:25 / Emil Páll

Skuldlaus vísitölufjölskylda

3316,


» 15 hafa sagt sína skoðun

13.10.2010 18:04:17 / Emil Páll

Ábending til þeirra sem skrifa skoðun sína undir MOLUM

3315. Þar sem sumir virðast eiga erfitt með að lesta það sem stendur hér til hliðar, ætla ég nú að endurtaka það hér.

Nafnleysi eru ekki liðin, né órekjanlegt netfang. Mun ég sannreyna öll netföng sem koma með kommentum og áskil mér þann rétt að fjarlægja þau sem fara ekki eftir þessum reglum síðunnar. Eins mun ég fjarlægja þau komment sem eru mér ekki að skapi eða mér finnst vera óviðeigandi.

» 14 hafa sagt sína skoðun

13.10.2010 17:51:26 / Emil Páll

IOI og Sleggz hættið að ljúga til um nafn

3314. Sveimér þá ef þeir sem hafa skrifað ályt undir MOLANUM um prestinn og kalla sig IOI eða Sleggz, hljóta að vera illa steiktir, eða kolruglaðir. Allavega fara þeir ekki eftir þeim reglum sem fram koma efst á síðunni og því hef ég fjarlægt þeirra álit. Framvegis mun ég eins og hingað til einnig birta IP tölu þeirra sem slíkt gera og birti nú t.d. þá tölu varðandi IOI, en hann hefur töluna 85.197.228.233 og er því auðvelt að sjá hver hann er.

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 218
Textabox

Molar
 
Emil Páll Jónsson

• Grín
• Gagnrýni
• Vangaveltur

------------------

Fréttir

• Staðreyndir
Textabox

  • Ábending til þeirra sem skrifa 
  • skoðun sína undir 
  • MOLUM

Nafnleysi eru ekki liðin, né órekjanlegt netfang. Mun ég sannreyna öll netföng sem koma með kommentum og áskil mér þann rétt að fjarlægja þau sem fara ekki eftir þessum reglum síðunnar. Eins mun ég fjarlægja þau komment sem eru mér ekki að skapi eða mér finnst vera óviðeigandi.
Heimsóknir
Í dag:  109  Alls: 640882
RSS tengill
Mínar heimasíður
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012